Rúrik og Valentina saman á Íslandi

Rúrik Gíslason og Valentina Pahde úti í náttúrunni.
Rúrik Gíslason og Valentina Pahde úti í náttúrunni. Skjáskot/Instagram

Þýska leikkonan Valentina Pahde var stödd á Íslandi um áramótin en í sumar var því haldið fram að hún og Rúrik Gíslason ættu í ástarsambandi. Valentina hefur verið dugleg að birta myndir af sér í íslenskri náttúru í íslenskum útivistarfötum.

Rúrik og Valentina passa að birta ekki myndir hvort af öðru á samfélagsmiðlum sínum. Erlendir aðdáendur þeirra virðast hins vegar sannfæðir um að Valentina sé stödd á Íslandi. Rúrik birti myndir af sér á ferðalagi um landið í síðustu viku og hefur verið duglegur að læka myndir Valentinu. 

Þýskir fjölmiðlar greindu frá meintu ástarsambandi Valentinu og Rúriks í byrjun sumars. Þau kynntust í tökum á þættinum Let's Dance sem Rúrik vann.

Undanfarna daga hefur Valentina verið dressuð upp í vörur frá 66°Norður. Þegar fyrrverandi kærasta Rúriks, brasilíska fyrirsætan Nathalie Soliani, kom til landsins var hún vanalega dressuð upp í íslenska útivistarmerkið. 




mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál