Hjálmar Örn Jóhannsson, skemmtikraftur og hlaðvarpsstjarna, gerði bráðfyndið símaat í Veðurstofu Íslands á dögunum þegar hann hringdi inn og bað um að láta breyta gulri veðurviðvörun í rauða viðvörun í Mosfellsdal.
Hjálmar hafði ekki erindi sem erfiði í þetta skipti en símaatið gerði hann í hlaðvarpsþættinum Hæ Hæ - Ævintýri Hjálmars og Helga sem hann heldur úti ásamt Helga Jean Claessen.