Leikarinn Vilhelm Neto og Tinna Ýr Jónsdóttir er nýjasta parið í bænum. Tinna birti fallega mynd af þeim saman á Instagram í gær og staðfesti Vilhelm í samtali við Smartland að þau eru saman.
Vilhelm, sem er jafnan kallaður Villi Neto, er menntaður leikari og þekktur fyrir húmorinn sinn. Hann hefur meðal annars komið fram í áramótaskaupinu og var í höfundateyminu í fyrra. Tinna Ýr er einnig mikill húmoristi en hún sér um samfélagsmiðla fyrir Adam og Evu og gerir skemmtilega sketsa á samfélagsmiðlum þeirra.
Smartland óskar parinu til hamingju með ástina.