Hjónin Jón Arnar Guðbrandsson og Ingibjörg Þorvaldsdóttir hafa verið áberandi í veitingabransanum síðustu ár og gert góða hluti með Pure Deli. Áður en þau fóru út í veitingabransann ráku þau húsgagnaverslunina Habitat en þar áður átti Ingibjörg verslunina Oasis. Nú hafa hjónin ákveðið að fara hvort í sína áttina.
Ingibjörg mun halda áfram að reka Pure Deli af sama myndarskap og áður en á dögunum opnaði hann veitingastaðinn Grazie Trattoria.
Smartland óskar þeim góðs gengis í öldugangi lífsins.