Birkir Bjarnason, atvinnumaður í knattspyrnu, og kærasta hans, fyrirsætan Sophie Gordon, fagna ástinni í dag. Þau eru óhrædd að deila ást sinni hvors á öðru með heiminum og óska hvort öðru til hamingju með árin þrjú.
„Þrjú ár,“ skrifaði fyrirsætan Sophie Gordon í sögu á Instagram á mánudagsmorgun. Hún birti mynd af þeim Birki á ströndinni og játaði ást sína á frönsku. Knattspyrnukappinn svaraði kærustunni með rómantískum skilaboðum í sögu. Hann birti fallega mynd af Sophie, setti inn myndir af nútímalegum hjörtum og skrifaði þrjú ár.
Parið virðist afar lukkulegt saman þrátt fyrir að vera ekki saman öllum stundum. Á meðan Birkir spilar knattspyrnu í Tyrklandi er Sophie oft á ferð og flugi að sinna fyrirsætustörfum.