Fótboltamaðurinn Jóhann Berg Guðmundsson og lögfræðingurinn Hólmfríður Björnsdóttir gengu í hjónaband 16. júní. Brúðkaupið fór fram á Alicante-svæðinu á Spáni.
Jóhann Berg er leikmaður enska knattspyrnuliðsins Burnley en árið 2018 bað hann Hólmfríðar. Bónorðið var borið upp um þremur vikum fyrir leik Íslands og Rússlands. Hjónin eiga tvö börn saman og því ekki úr vegi að láta innsigla ástina með hjónabandi.
Mikið fjör var í brúðkaupinu en íslenskum skemmtikröftum var flogið út til að gera veisluna sem skemmtilegasta. Emmsjé Gauti skemmti í veislunni ásamt Herra hnetusmjöri en það kom í hlut hins stórskemmtilega Sóla Hólm að vera veislustjóri í brúðkaupinu. Eyjólfur Kristjánsson tók einnig lagið eins og honum einum er lagið.
Smartland óskar hjónunum til hamingju með ráðahaginn!