Katrín Rut Bessadóttir verkefnastjóri í Háskólanum í Reykjavík og Helgi Seljan rannsóknarritstjóri Stundarinnar eru nú hjón. Parið lét pússa sig saman hjá Sýslumanni og fögnuðu svo með vinum og fjölskyldu.
Parið var búið að vera trúlofað í 5150 daga, eða rúmlega 14 ár, þegar þau létu loksins verða af því að verða alvöru hjón. Þau eru þó búin að vera töluvert lengur á föstu en í 14 ár.
Ástin leiddi þau saman í gegnum blaðamennsku en um tíma unnu þau bæði á DV. Síðan þá hafa þau unnið fjölmörg störf, eignast þrjú börn, keypt og selt íbúðir og farið í gegnum lífið saman.
Smartland greindi frá því árið 2013 að Helgi Seljan hefði gift sig. Tekið skal fram að ekki var um alvöru brúðkaup að ræða heldur gjörning á tískusýningu Kormáks og Skjaldar. Þar var Ragnar Kjartansson listamaður í hlutverki Sýslumannsins og þótti þessi gjörningur sniðugur og fyndinn eins og sjá má í myndskeiði hér fyrir neðan. Það var Ellý Ármannsdóttir sem tók upp þetta myndband á tískusýningunni.
Smartland óskar hjónunum til hamingju með giftinguna!