Einn heitasti þungarokkari landsins, Stefán Jakobsson, söngvari í Dimmu og Kristín Sif Björgvinsdóttir útvarpsstjarna á K100 eru nýtt par. Kristín Sif sagði frá því í morgunþættinum Ísland vaknar í vikunni að hún væri komin á fast en vildi alls ekki gefa upp hver sá heppni væri.
Nú hefur það verið afhjúpað þar sem parið birti mynd af sér saman þar sem þau njóta lífsins saman í Berlín.
„Bralli og Bulli í Berlín. Bestu vinir, geggjað skotin, yfir sig ástfangin og æðislega hamingjusöm með hvort annað,“ segir Kristín Sif á Instagram-síðu sinni.
Kristín Sif skildi á dögunum við eiginmann sinn til skamms tíma. Stefán er líka fráskilinn en auk þess að vera í Dimmu hefur hann unnið við ferðaþjónustu fyrir norðan.
Smartland óskar þeim til hamingju með hvort annað!