Fyrirsætan Nadía Sif Líndal frumsýndi kærasta sinn, breska körfuboltamannin Lucien Christofis, á Instagram í gær. Parið hefur verið að hittast undanfarna mánuði og eyddi tíma saman á Ítalíu í sumar.
Christofis leikur körfubolta með ÍA, en hann kom aftur til liðsins í sumar eftir stutt stopp á Bretlandi þar sem hann spilaði með Worthing T.
Nadía skaust upp á stjörnuhimininn þegar hún eyddi kvöldstund með tveimur enskum mönnum enska fótboltalandsliðsins á hóteli hér á Íslandi eftir leik Íslands og Englands haustið 2020.
Undir myndaseríuna af Christofis skrifar Nadía að hún sé þakklát og svarar hann undir myndina: „Amore mio“ eða „ástin mín“.
Smartland óskar þeim til hamingju með að hafa fundið hvort annað!