Leikarinn Hilmir Snær Guðnason og Bryndís Jónsdóttir, móttöku- og þjónustufulltrúi á Listasafni Íslands, standa nú í skilnaði. Þetta herma heimildir Smartlands en Fréttablaðið greindi fyrst frá.
Hilmir Snær og Bryndís hafa verið gift í tólf ár og saman eiga þau eina dóttur, en hann á aðra dóttur fyrir.
Hilmir Snær er einn ástsælasti leikari þjóðarinnar og hefur brillerað á bæði hvíta tjaldinu og á leiksviðinu. Hann er einnig margverðlaunaður leikari og hlaut nú síðast Edduverðlaunin fyrir hlutverk sitt í Dýrinu.
Smartland óskar þeim velfarnaðar á þessum tímamótum!