Tónlistarmaðurinn Sverrir Bergmann og lögfræðingurinn Kristín Eva Geirsdóttir eru trúlofuð. Parið greindi frá gleðifréttunum á samfélagsmiðlum í gær.
Sverrir og Kristín trúlofuðu sig hinn 9. nóvember síðastliðinn. Þau eiga saman tvær dætur, Ástu Berthu og Sunnu Stellu.
Smartland óskar þeim til hamingju með ástina!