Ari Eldjárn og Linda Guðrún Karlsdóttir eru farin hvort í sína áttina eftir áralanga sambúð.
Ari er einn ástsælasti grínisti Íslands frá upphafi og sá fyrsti til að flytja uppistand sitt á Netflix. Linda Guðrún hefur getið sér gott orð fyrir myndlistarverk sín undir nafninu Stóra Lúna.
Þetta skapandi par hefur búið á Seltjarnarnesi seinustu ár og eiga þau tvö börn saman.
Smartland óskar þeim góðs gengis í öldugangi lífsins!