Gunnar og Katrín giftu sig í leyni fyrir 15 árum

Gunnar Sigvaldason og Katrín Jakobsdóttir fagna kristalsbrúðkaupi í dag.
Gunnar Sigvaldason og Katrín Jakobsdóttir fagna kristalsbrúðkaupi í dag. Arnþór Birkisson

Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra og Gunnar Sigvaldason hafa verið gift í fimmtán ár í dag. Hjónin fagna kristalsbrúðkaupinu hvort í sínu landinu, en Katrín er stödd á leiðtogafundi JEF-samstarfsins í Ríga en Gunnar er heima á Íslandi.

„Við giftum okkur nokkuð skyndilega árið 2007 og sögðum örfáum frá þeirri ákvörðun, ég var þá komin á steypirinn og sonur 2 kom í heiminn á gamlársdag sama ár. Við giftum okkur hjá Sýslumanni og fórum svo með elsta syninum á Hornið og Ísbúð Vesturbæjar. Við komumst að því þetta kvöld að líklega væri barnið með mjólkurofnæmi þar sem brúðkaupsnóttin fór i að hjálpa gubbandi tveggja ára barni sem hafði fengið sér ótæpilega af ís.

En fall er fararheill og þetta 15 ára ferðalag hefur verið viðburðaríkt, stundum erfitt, oft skemmtilegt en fyrst og fremst farsælt,“ skrifar Katrín í færslu á Facebook. 

Þakklát fyrir alla daga

„Verstu stundirnar eigum við þegar við setjum saman húsgögn eða erum saman í bíl því við eigum það sameiginlegt að vita allt best. Bestu stundirnar eru þegar við hlæjum saman að einhverri vitleysu sem við gerum sem betur fer oft - og alltaf eftir þessar erfiðu stundir!

Við sýndum til dæmis nokkra snilldartakta núna á laugardaginn þegar mér fannst það góð hugmynd að keyra í ófærð og stórhríð til að græja nokkrar jólagjafir. Eftir afar hægan akstur úr Vesturbæ í Kringluna þar sem ég tók mitt hlutverk sem aðstoðarökumaður mjög alvarlega við litlar vinsældir vorum við sammála um að þetta hefði mögulega ekki verið frábær hugmynd! Eftir að hafa komist klakklaust heim enduðum við á kafi í snjómokstri (á meðan enn kyngdi niður snjó) þar sem við vissum að sjálfsögðu bæði best hvernig ætti nákvæmlega að moka snjó með sem skilvirkustum hætti og þessi mynd er tekin í miðju því samtali,“ skrifar Katrín og segist vera þakklát fyrr alla daga.

Smartland óskar þeim til hamingju með áfangann!

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál