Fanney Ingvarsdóttir, áhrifavaldur og starfsmaður Bioeffect, er trúlofuð unnusta sínum Teiti Páli Reynissyni. Fanney greinir frá gleðifréttunum á Instagram.
„07.01.23 - auðveldasta já í heimi,“ skrifar Fanney meðal annars á Instagram. Sagðist hún ekki getað beðið eftir að giftast ástinni sinni og birti mynd af fallegum hring á baugfingri.
Fanney og Teitur hafa verið saman í töluverðan tíma og eiga tvö börn saman.
Smartland óskar þeim til hamingju með trúlofunina!