Tónlistarkonan Þórunn Antonía Magnúsdóttir og börn hennar tvö eru komin með samastað næstu þrjá og hálfan mánuð. Frá þessu greinir Þórunn á Instagram en þau hafa verið á hrakhólum eftir að mygla fannst í íbúð þeirra í Vesturbæ Reykjavíkur.
„Jæja… 9 áfangastöðum seinna erum við komin með fastan samastað í 3,5 mánuði,“ skrifar Þórunn við mynd af sér.
Þórunn sagði frá því í vetur að þau fjölskyldan neyddust til að flytja út af heimilinu vegna myglunnar, en hún hafði mikil áhrif á heilsu þeirra allra. Illa gekk í húsnæðisleitinni líkt og Þórunn segir frá og hafa þau þurft að færa sig milli staða.