Dagur Sigurðsson, þjálfari japanska landsliðsins í handbolta, og Ingunn Sigurpálsdóttir, markaðsfulltrúi Bpro, eru nýtt par.
Vísir greinir frá.
Dagur lék handbolta með íslenska landsliðinu á sínum tíma og er í dag einn af fremstu handknattleiksþjálfurum þjóðarinnar. Undanfarin ár hefur hann stýrt landsliði Japans með góðum árangri. Dagur var kvæntur Ingibjörgu Pálmadóttur en þau fóru hvort í sína áttina á síðasta ári.
Ingunn er sem segir markaðsstjóri Bpro. Hún keppti í Ungfrú Íslandi árið 2005 og lenti í öðru sæti í keppninni. Hún var áður með Garpi I. Elísabetarsyni.
Dagur á þrjú börn úr fyrra hjónabandi og Ingunn á tvö börn úr fyrra sambandi.
Smartland óskar þeim innilega til hamingju!