Margeir Ingólfsson og Karen Grétarsdóttir eru nýtt par. Margeir er þekktur plötusnúður og það er Karen reyndar líka. Hún kallar sig Duchess og hefur þeytt skífum um allan heim. Auk þess að þeyta skífum stundar hún lögfræðinám. Margeir hefur unnið lengi í hugbúnaðargeiranum og er ráðgjafi og stjórnarformaður Hugsmiðjunnar.
Í kvöld mun parið leiða saman hesta sína þar sem þau verða plötusnúðar í Smirnoff-teiti sem haldið verður á skemmtistaðnum Auto. Þau verða þó ekki bara tvö á ferð því Daníel Ágúst tónlistarmaður í GusGus mun einnig koma fram. Það verður ekki bara boðið upp á tónlist og drykki í boðinu því Studio23 býður upp á sjónræna örvun.