Sigmar Vilhjálmsson athafnamaður er ekki með bílpróf lengur eftir að hann var tekinn af lögreglunni fyrir ölvun við akstur. Sigmar, eða Simmi Vill eins og hann er kallaður, er framkvæmdastjóri Munnbitans.
Hann greindi frá því á Twitter að hann ætlaði að taka upp bíllausan lífsstíl. Fólk sem þekkir Simma veit að það er mikið út úr karakter þar sem hann hefur alltaf lagt upp úr því að vera vel akandi.
„Maður fer nú ekkert í gegnum sumar án þess að nota bíl einhvern tímann. Maður á nú þrjú börn. En ég mun hjóla í og úr vinnunni,“ segir hann í samtali við mbl.is en Simmi býr í Mosfellsbæ og vinnur í Skútuvogi.
Nú liggur fyrir að Simmi mun væntanlega fara alveg bíllaus í gegnum sumarið þar sem hann fær bílprófið ekki aftur fyrr en í ágúst.
Hann sagði frá því í útvarpsþætti á Bylgjunni að hann hefði misst prófið.
Smartland óskar Simma góðs gengis og er viss um að hann komi mun sterkari út úr þessari lífsreynslu! Svo er miklu betra fyrir hjarta- og æðakerfi að ferðast um á hjóli.