Börkur Gunnarsson rektor Kvikmyndaskóla Íslands og Fríða Einarsdóttir viðskiptafræðingur og fjármálastjóri ReykTal eru nýtt par. Börkur er 53 ára og Fríða 43 ára.
Parið kynntist í MBA námi sem þau stunda en bæði útskrifast í vor. Þrátt fyrir að hafa vitað af hvort öðru þá kynntust þau ennþá betur þegar þau vörðu saman lokaverkefni í MIT háskólanum í Boston í lok mars.
Börkur hefur komið víða við á starfsferli sínum. Hann var lengi blaðamaður á Morgunblaðinu en hann lærði kvikmyndagerð í Prag í Tékklandi. Fríða starfaði áður hjá Arion banka sem viðskiptastjóri á fyrirtækjasviði og síðar áhættustjóri útlána.
Smartland óskar þeim til hamingju með ástina!