Helena og Dr. Gunni eru nýtt par

Helena Hansdóttir Aspelund og Gunnar Lárus Hjálmarsson eru nýtt par.
Helena Hansdóttir Aspelund og Gunnar Lárus Hjálmarsson eru nýtt par. Ljósmynd/Samsett

Myndlistarmaðurinn Helena Hansdóttir Aspelund og tónlistarmaðurinn Gunnar Lárus Hjálmarsson, eða Dr. Gunni eins og hann er jafnan kallaður, eru nýtt par. Parið býr yfir miklum listrænum hæfileikum. 

Hann hefur verið áberandi í íslenskum fjölmiðlum í gegnum tíðina. Hann stýrði hinum geysivinsæla spurningaþætti Popppunkti á Ríkissjónvarpinu, hefur verið með vinsæla útvarpsþætti, starfað sem blaðamaður og svo var hann dómari í Ísland Got Talent á Stöð 2. Hann hefur spilað með Unun, Bless og S.H. Draumi svo einhverjar hljómsveitir séu nefndar. 

Helena hefur fengist við margt spennandi í gegnum tíðina en á tímabili keyrði hún með ferðamenn á eigin rútu og svo hefur hún kennt myndlist. Hún rekur líka Týsgallerí. 

Um þessar mundir er parið að sleikja sólina í Evrópu og njóta alls þess besta sem lífið hefur upp á að bjóða. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál