Fitnessdrottningin Hrönn Sigurðardóttir er látin 44 ára að aldri. Hrönn var afrekskona í ólympíufitness og eigandi verslunarinnar BeFit. Hún greindist með nýrnahettukrabbamein fyrir rúmlega ári síðan.
Eiginmaður hennar, Sæmundur Bæringsson, greindi frá því á Facebook-síðu sinni. Hönn
„Ástkær eiginkona mín Hrönn Sigurðardóttir er látin einungis 44 ára gömul eftir gríðarlega erfiða baráttu við íllvigt krabbamein. Hún barðist eins og ljón fram á síðustu stundu eins og henni var einni lagið en gat ekki meir,“ segir Sæmundur.
Hrönn lætur eftir sig fjögur börn.