Albert fursti af Mónakó og Charlene prinsessa fögnuðu 12 ára brúðkaupsafmæli sínu um helgina. Höllin birti í tilefni af því fallega mynd af hjónunum frá því fyrr í sumar þar sem þau sjást horfa fallega til hvors annars.
Frá upphafi hefur verið sá orðrómur á kreiki að parið sé ekki jafn hamingjusamt og það vill vera láta. Hún hafi til að mynda reynt að flýja nokkrum sinnum dagana fyrir brúðkaupið árið 2011 og svo sást til hennar gráta á sjálfum brúðkaupsdeginum. Þá var vera hennar í Suður-Afríku, á meðan hún var að jafna sig á veikindum, til þess að auka enn frekar á orðróminn. Franskir fjölmiðlar segja að Albert prins borgi henni góð laun til þess að vera sér við hlið og sinna skyldustörfum.