Ljósmyndarinn Dóra Dúna Sighvatsdóttir og Guðlaug Björnsdóttir, markaðsstjóri Viss, eru giftar. Það er óhætt að segja að árið sé búið að vera viðburðaríkt en þær eignuðust dóttur í byrjun sumars sem hlaut nafnið Ragnhildur Sesselja.
Dóra og Guðlaug giftu sig við lágstemmda athöfn í Fríkirkjunni í Reykjavík á föstudag og deildu fallegum myndum á Instagram í tilefni dagsins. „JUST MARRIED! Veislan verður seinna við lofum!!!“, skrifaði Dóra Dúna við færsluna.
Smartland óskar þeim innilega til hamingju með ástina!