Prettyboitjokko selur bílinn og skoðar skipti fyrir ódýrari

Tónlistarmaðurinn Patrik Atlason, betur þekktur sem Prettyboitjokko, hefur sett ljósbláa …
Tónlistarmaðurinn Patrik Atlason, betur þekktur sem Prettyboitjokko, hefur sett ljósbláa Porsche glæsibifreið sína á sölu. Samsett mynd

Tónlistarmaðurinn Patrik Atlason, betur þekktur sem Prettyboitjokko, hefur sett ljósbláa glæsibifreið sína á sölu. Bíllinn er af tegundinni Porsche Taycan og er árgerð 2022.

Á vef bílasölunnar kemur fram að rafmagnsbíllinn sé keyrður 9 þúsund kílómetra. Ásett verð er 14.490.000 krónur, en þar kemur einnig fram að seljandi skoði skipti á ódýrari bíl. 

Í síðustu viku greindi Smartland frá því að Patrik væri kominn á trylltan hvítan sportjeppa af tegundinni Porsche Cayenne, en grunnverð á slíkum bíl er rúmlega 16,4 milljónir króna hér á landi. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál