Gjörbreytti ekki andlitinu með fegrunaraðgerðum

Kylie Jenner segir að einu fegrunaraðgerðirnar sem hún hafi farið …
Kylie Jenner segir að einu fegrunaraðgerðirnar sem hún hafi farið í séu varafyllingar. AFP/Angela Weiss

Raunveruleikastjarnan Kylie Jenner þvertekur fyrir það að hafa gjörbreytt andliti sínu með fegrunaraðgerðum. Segist hún eingöngu hafa farið í varafyllingar, en hún fór í sína fyrstu varafyllingu einungis 17 ára gömul. 

Jenner ræðir fegrunaraðgerðirnar í nýjasta þættinum af raunveruleikaþáttunum The Kardashians sem vefmiðilinn PageSix greinir frá. Segir hún einnig að einn helsti misskilningur fólks um hana sé að hún hafi verið það óörugg sem barn að hún hafi farið undir hnífinn til að breyta andlitinu. Hún hefur hins vegar viðurkennt að hafa fengið sér varafyllingar því hún vildi virðast sætari.

Kom þetta til tals þegar Jenner ræddi við systur sínar, Khloé og Kourtney Kardashian, um áhrif þeirra á samfélagslega fegurðarstaðla. 

Nokkur munur er á útliti Kylie Jenner frá því hún …
Nokkur munur er á útliti Kylie Jenner frá því hún var 16 ára, til vinstri, og í dag, til hægri. Samsett mynd
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda