Knattspyrnumaðurinn Gylfi Þór Sigurðsson og Alexandra Helga Ívarsdóttir hafa sett lóð sína við Mávanes í Garðabæ á sölu. Viðskiptablaðið greindi fyrst frá.
Lóðin sem um ræðir er sjávarlóð með óhindruðu útsýni til suðurs yfir Arnarnesvoginn og Sjálandshverfið. Hún er 1.400 fm að stærð og þar er heimilt að byggja 600 fm hús.
Gylfi og Alexandra festu kaup á lóðinni í júlí 2020 og var kaupverðið 140 milljónir króna. Óskað er eftir tilboði í lóðina, en fasteignamatið er 95,1 milljón króna.