Björgvin Þorsteinsson og norska fegurðardrottningin Mona Grudt eru að skilja. Frá þessu er greint í norskum fjölmiðlum í dag en mikið hefur verið fjallað um samband þeirra í slúðurmiðlum í Noregi undanfarin ár.
Prýddi mynd úr brúðkaupi þeirra hjóna forsíðu norska Séð og heyrt í nóvember árið 2021.
Grudt greinir frá skilnaðinum í færslu á Facebook og segir þar að þau hafi komist að sameiginlegri niðurstöðu um að sambandið væri ekki að ganga upp. Því hafi þau ákveðið að skilja.
Grudt vann titilinn Miss Universe árið 1990 og eina norska konan sem gert hefur það. Hún er með marga fylgjendur á samfélagsmiðlum, eigin rás á Youtube og tíður gestur í norskum fjölmiðlum.