HAF-hjónin gift í 12 ár

Hafsteinn Júlíusson og Karitas Sveinsdóttir hafa verið gift í 12 …
Hafsteinn Júlíusson og Karitas Sveinsdóttir hafa verið gift í 12 ár. Ljósmynd/Aldís Páls

Hjónin og hönnunartvíeykið Hafsteinn Júlíusson og Karitas Sveinsdóttir fögnuðu í gær 12 ára brúðkaupsafmæli sínu. 

Hafsteinn og Karitas hafa verið áberandi í hönnunarsenunni hér á landi undanfarin ár, en þau hafa hannað hina ýmsu veitingastaði, verslanir og heimili fyrir fólk auk þess að gera upp eigin íbúðir og hús. Þau eru jafnframt eigendur HAF Store og HAF Studio.

Nýlega seldu hjónin glæsihús sitt við Laufásveg og keyptu 306 fm einbýlishús við Fjölnisveg í Reykjavík, en margir bíða spenntir eftir því að fylgjast með hjónunum og nýju heimili þeirra.

Fögnuðu deginum í nýja garðinum

Í tilefni dagsins birti Karitas fallega færslu á Instagram og mynd af brúðhjónunum á brúðkaupsdaginn sjálfan. 

„Við Hafsteinn minn áttum TÓLF ára brúðkaupsafmæli í gær. Silkibrúðkaup. Áttum yndislegan dag í fallega garðinum okkar með okkar nánustu. Sem endaði svo með ferð á slysó með elsku litluna okkar, og límt fyrir gatið. Heppni í óheppninni að augað slapp þrátt fyrir glóðarauga.

Takk fyrir allt okkar elsku Hafsteinn, þú ert langbestur og ég er svo þakklát fyrir þig alla daga alltaf.“

Smartland óskar þeim til hamingju með ástina!

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál