Heitasta tónlistarkona landsins á lausu

Tónlistarkonan Bríet Ísis Elfar er á lausu.
Tónlistarkonan Bríet Ísis Elfar er á lausu. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Tónlistarkonan Bríet Ísis Elfar og Rubin Pollock, gítarleikari hljómsveitarinnar Kaleo, eru hætt saman eftir þriggja ára samband. Vísir greindi frá þessu.

Bríet og Rubin byrjuðu saman í ágúst árið 2020 og hafa verið áberandi í tónlistarsenunni síðustu ár. 

Bríet hefur verið ein vinsælasta tónlistarkona landsins undanfarin ár, eða allt frá því hún gaf út lagið Esjuna vorið 2020 sem hefur fengið yfir fjórar milljónir spilana á Spotify. Síðan þá hefur hún gefið út þónokkur lög og plötuna Kveðja, Bríet, en fyrr í dag gaf Bríet út lagið Venus ásamt tónlistarmanninum Ásgeiri Trausta.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál