Helga Daníelsdóttir, oft kennd við skartgripaverslunina Leonard, var úrskurðuð gjaldþrota 14. september. Helga er eiginkona Arnfinns Sævars Jónssonar, sem oft er kallaður Sævar í Leonard en hann var atvinnumaður í knattspyrnu á sínum yngri árum. Hann var atvinnumaður í Sviss þegar hann hann lærði að meta góð úr og skartgripi sem varð til þess að þau hjónin opnuðu Leonard á sínum tíma. Það var árið 1991 og var fyrsta Leonard verslunin í Borgarkringlunni. 1994 færðu þau sig yfir í Kringluna.
Hjónin lokuðu verslun sinni í Kringlunni 2020 og reka í dag netverslun, leonard.is. Þau hafa aðsetur á Garðatorgi í Garðabænum þar sem þau selja töskur frá Michael Kors, skargripi frá Sif Jakobs, Sign, Hendrikku Waage og fleirum.