„Svo komu alls kyns sárar sögusagnir sem flæktu málin mjög mikið“

Drífa Björk Linnett Kristjánsdóttir missti manninn sinn í eldsvoða á …
Drífa Björk Linnett Kristjánsdóttir missti manninn sinn í eldsvoða á Tenerife.

Líf Drífu Bjarkar Linnett Kristjánsdóttur breyttist varanlega sunnudaginn 6. febrúar árið 2022. Þá missti hún eiginmann sinn, Harald Loga Hrafnkelsson, í slysi af völdum eldsvoða í bílskúr heimils þeirra á Tenerife. Litlu munaði að fleiri í fjölskyldunni yrðu brunanum að bráð. Drífa ræðir þessa erfiðu reynslu, áfallið, sorgina, heimilismissinn, vinaslit, dómstól götunnar og uppbyggingu nýs lífs í nýjasta hlaðvarps Einars Bárðarsonar, Einmitt.  

Drífa og Halli Logi, eins og hann var jafnan kallaður, voru með rekstur á Íslandi, heildsöluna Reykjavík Warehouse og sumarveitingastað og tjaldsvæðið í Hraunborgum. Þau voru komin með annan fótinn til Tenerife og ráku þar kaffibarinn Backyard í verslunarmiðstöð yfir veturinn. Drífa segist vera alin upp af mjög duglegu fólki. Pabbi hennar hafi verið svona sveitadurgur sem kunni allt og var af gamla skólanum. 

„Svo var mamma með þetta rosalega viðskiptavit og kjarnakona. Ég er alin upp í þessu umhverfi og forréttindi sem er ekki hægt að taka úr mér,“ segir Drífa. 

Jens Hansson, Halli Logi og Drífa Björk Linnett Kristjánsdóttir. Þessi …
Jens Hansson, Halli Logi og Drífa Björk Linnett Kristjánsdóttir. Þessi mynd var tekin 2016. mbl.is/Stella Andrea

Fjölskyldan saman á vöktum

Þegar Drífa kynntist Halla Loga var hún fasteignasali og hann starfaði hjá Birtíngi og Íslandsbanka. Svo stofnuðu þau heildsölu í bílskúrnum eftir að þau byrjuðu að búa. Þau áttu sumarbústað í Hraunborgum og fannst vanta meiri metnað í rekstur veitingastaðarins þar.

„Halli var ekki alveg til í það fyrst en gaf sig og börnin fengu sitt hlutverk og við vorum saman á vöktum. Þegar Halli dó breyttist þetta og við urðum því miður að selja. Það var erfitt skref að sleppa tökunum á þessu en á sama tíma eina vitið,“ segir hún. 

Drífa og Halli Logi áttu saman tvö börn, Björk Linnet og Harald Loga. Áður en þau kynntust eignaðist Drífa dótturina Söru Jamín og segir hún að hann hafi komið henni í föðurstað og hafi alið hana upp eins og sína eigin dóttur. 

Árið 2008 fór fjölskyldan saman í frí til Tenerife og Drífa sá tækifæri alls staðar. 10 árum síðar voru þau með mjög margt á sinni könnu og yngsta barn á leikskóla.

„Þá sá ég tækifæri til að vera meira með Björk og kenna henni annað en að vinna. Íslensk kona auglýsti hús til leigu í 3 mánuði og Halli hvatti mig til að fara út og þar var vorum við tvær saman í níu mánuði og strákarnir komu oft út til okkar. Þetta er besta ákvörðun sem ég hef tekið fyrir mig. Miklu meiri ró samhliða fjarvinnunni. Halli sinnti öðru heima. Þetta endaði með því að við fluttum öll út, í annað hús, krakkarnir komnir í skóla þar og svo unnum við í Hraunborgum á sumrin,“ segir hún. 

Bruninn og aðdragandinn

Drífa segir frá því í smáatriðum hvernig aðdrgandinn að andláti Halla Loga hafi verið. Fyrr um kvöldið höfðu þau verið í stórafmæli hjá vini sínum en hún fór fyrr heim. 

„Halli kom heim lyklalaus eftir að við vorum sofnuð. Hann vildi ekki vekja okkur og sofnaði í öðrum bílnum. Þetta var í febrúar og orðið dálítið kalt og hann ræsti því bílinn og sofnaði. Öll atburðarásin náðist í öryggismyndavélum.“

Vegna galla í framleiðslu bifreiða af þessari árgerð og tegund voru 47 þúsund slíkar afturkallaðar af umboðinu, en þetta var bílaleigubíll og eigandi bílaleigunnar hafði ekki sinnt því.   

Allt í einu stendur Drífa í þeim sporum að sjá heimilið sitt brenna, orðin fúl út í eiginmanninn sem hafði ekki skilað sér heim en á sama tíma með áhyggjur af honum. Húsið þeirra var innsiglað sem rannsóknarvettvangur og fjölskyldan flutti á hótel, þar sem Drífa þurfti að færa börnunum sorgarfréttirnar og mæta í skýrslutökur í áfalli. Fjölmiðlar ytra voru byrjaðir að birta myndir af húsinu.

Hún segir að dómstóll götunnar hafi bætt gráu ofan á svart.

„Svo komu alls kyns sárar sögusagnir sem flæktu málin mjög mikið og svertu minningu Halla og fjölskyldunnar. Fólk er enn að ræða í matarboðum og segja að Halli hafi verið tengdur mafíustarfsemi. Allt í einu er lítill kaffistaður í miðju molli orðinn að rússneskum næturklúbbi þar sem seld eru vopn. Raunverulegir vinir okkar eru meðal þeirra sem hafa dreift slíku og ég hef þurft að taka vel til í mínum vinahópi eftir þetta.“

Fasteignasali og fjárfestir

Drífa og börnin hafa mætt mótlæti í sorgarferli sínu. Drífa starfar í dag sem fasteignasali á Spáni og er fjárfestir. Hún segist vera að reyna að koma fjölskyldunni upp heimili á ný, ná áttum og taka ákvarðanir fyrir marga.

„Það hefur fylgt mér að vera hluti af einhverju sjálfbætandi og mannbætandi og ég hef alltaf einblínt á leiðir til góðs lífs. Maður er til dæmis alltaf á réttri leið í bataferli í sorginni þegar maður leyfir tilfinningum að koma þegar þær eiga að koma. Leyfir ferlinu að gerast. Og því er erfitt þegar fólk vill gefa manni vel meint óumbeðin ráð. Þetta þarf að allt að hafa sinn tíma. Þetta fólk hefur ekki verið í þessum sporum og ég hef alveg staðið mig vel hingað til.“

Hægt er að hlusta á þáttinn í heild sinni á hlaðvarpsvef mbl.is. 

Drífa Björk Linnet, Halli Logi og Kristín Kristmundsdóttir. Þessi mynd …
Drífa Björk Linnet, Halli Logi og Kristín Kristmundsdóttir. Þessi mynd var tekin 2016. mbl.is/Freyja Gylfa
Drífa og Haraldur Logi fyrir nokkrum árum.
Drífa og Haraldur Logi fyrir nokkrum árum. mbl.is/Ómar Óskarsson
Haraldur Logi Hrafnkelsson lést í eldsvoða á Tenerife.
Haraldur Logi Hrafnkelsson lést í eldsvoða á Tenerife.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál