Það er alltaf nóg um að vera hjá fyrirsætunni Ásdísi Rán Gunnarsdóttur. Nú segist hún hafa sett stefnuna á að vinna titilinn Ungfrú Ísland fyrir fimmtugt og hefur fengið einkaþjálfarann Arnar Grant til að aðstoða sig við undirbúning keppninnar.
Ásdís Rán birti sjóðheita speglamynd úr ræktinni af þeim Arnari á Instagram og útskýrði fyrir fylgjendum sínum hvert markmiðið væri.
„Þar sem búið er að létta öllum reglum af Ungrú Ísland þá ákváðum við Arnar Grant að taka æfingunum alvarlega og í framhaldi auðvitað rústa keppninni. Þannig að ég geti borið með sóma titlana Ísdrottning og Ungfrú Ísland fyrir fimmtugt,“ skrifaði Ásdís við myndina.