Fyrrum knattspyrnufólkið Brynjar Benediktsson og Jóna Kristín Hauksdóttir fögnuðu í gær 17 árum af ævintýrum saman.
Brynjar og Jóna Kristín eru eigendur fyrirtækisins Soccer and Education USA sem sérhæfir sig í að aðstoða íþróttafólk við að komast á háskólastyrk til Bandaríkjanna. Fyrirtækið stofnuðu þau árið 2015 og hafa í dag einnig sett á laggirnar fyrirtækið Iceland Soccer Travel sem sérhæfir sig á skipulagningu íþrótta- og upplifunarferða á Íslandi og í Bandaríkjunum.
Bæði deildu þau myndum á Instagram í tilefni dagsins og fögnuðu 17 árum af ást, en Brynjar og Jóna Kristín eiga saman tvö börn, Andres Aron sem kom í heiminn árið 2020 og Andreu Lind sem kom í heiminn árið 2022.
Smartland óskar þeim innilega til hamingju með ástina!