Eitt þekktasta par nútímans, Vítalía Lazareva og Arnar Grant, vörðu kvennafrídeginum saman en til þeirra sást þar sem þau rúntuðu um miðbæinn á glæsikerru nokkurri sem er ljósgrá að lit.
Um er að ræða Land Rover Defender sem var skráður á göturnar 15. febrúar 2021. Bíllinn er þó ekki í eigu parsins heldur er hann skráður á fyrirtækið Eskimóar Holding ehf. sem er félag sem starfar í ferðaþjónustu.
Hægt er að kaupa samskonar bíl og Arnar og Vítalía voru á í dag á vefnum bílasölur.is. Sá bíll kom líka á göturnar í febrúar 2021 og er keyrður 96.000 km. Hann er knúinn áfram með dísel olíu. Bíllinn er á tilboði núna og kostar 9.990.000 kr. en upphaflegt verð var 12.490.000 kr. þegar bíllinn var fyrst skráður á sölu 25. júlí í sumar.