„Það er enginn James Bond í þessu“

Arnaldur Indriðason er einn ástsælasti rithöfundur þjóðarinnar.  Í sam­starfi Smart­lands og For­lags­ins tal­ar hann um nýjustu bók sína Sæluríkið

„Það er enginn James Bond í þessu,“ segir Arnaldur og segir að það felist áskorun í að búa til spennandi efnivið úr sögu sem tengist kaldastríðsárunum. 

„Ögrunin að búa til eitthvað sem kannski þykir fjarstæðukennt,“ segir hann og bætir við: 

„Ef þú getur sett það í þann búning að það verði trúverðugt, þá er allt hægt,“ segir hann jafnframt. 

Sæluríkið er glæpasaga um brostna drauma, hugsjónir á villigötum og kalda grimmd og fólk sem á stórra harma að hefna. 

Við Hafravatn finnst ferðamaður látinn með áverka á höfði. Þegar ljóst verður að hann er í raun íslenskur og kom við sögu hjá lögreglunni þegar félagi hans hvarf nokkrum áratugum fyrr fer Konráð að grufla í samhengi hlutanna. Hans eigin fortíð blandast þar inn; umtalað morðmál frá áttunda áratugnum veldur uppnámi innan lögreglunnar og fornvinur hans, Leó, er farinn í felur. Um leið leitar tíðarandi kalda stríðsins á huga Konráðs, andrúmsloft samfélags í fjötrum sem litaðist af heift og flokkadráttum.

Sæluríkið er 27. skáldsaga Arnaldur sem hefur hlotið fjölda verðlauna og viðurkenninga fyrir bækur sínar sem hafa verið þýddar á tugi tungumála. Og selst í nær tuttugu milljónum eintaka um allan heim. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál