Diljá kynntist kærastanum úti á landi

Diljá Pétursdóttir fór í Eurovision og fann ástina.
Diljá Pétursdóttir fór í Eurovision og fann ástina. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Eurovision-stjarnan Diljá Pétursdóttir átti stórt ár í fyrra. Hún fór ekki bara í Eurovision heldur kynntist hún kærastanum sínum, tónlistarmanninum Róberti Andra Drzymkowski. Diljá fór yfir árið í sögu á Instagram-síðu sinni. 

„Ég kynntist Róberti í lok júní 2023 á kaffihúsi í hádeginu í Austur-Skaftafellssýslu,“ skrifaði Diljá á Instagram. „Hjartað mitt er búið að slá mjög fast eftir það.“

Diljá og Róbert eiga tónlistina sameiginlega. Róbert er í hljómsveitinni Nostalgíu, hljómsveitin er stemningasveit sem spilar meðal annars á böllum og útihátíðum. 

Smartland óskar parinu til hamingju með ástina!

Diljá opnaði sig um árið 2023 á Instagram.
Diljá opnaði sig um árið 2023 á Instagram. Skjáskot/Instagram
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál