Snorri Másson ritstjóri á Ritstjóranum og Nadine Guðrún Yaghi forstöðumaður samskipta og þjónustu hjá flugfélaginu Play hafa sett bílinn sinn á sölu.
Um er að ræða fjölskyldubíl frá Mitshubishi sem kallast Outlander. Bíllinn er 2019 árgerð og er ekinn 127 þúsund kílómetra. Hann er fjórhjóladrifinn og sjálfskiptur. Ásett verð er 2.990.000 kr.
Um vinsælan jeppling er að ræða en hann gengur fyrir bensíni og rafmagni og er fimm dyra. Bíllinn er ljósgrár og 135 hestöfl. Hann er á álfelgum og með hita í framsætunum.
Hægt er að skoða bílinn betur á vef Bílamiðstöðvarinnar.