Magnús Sverrir Þorsteinsson, forstjóri bílaleigunnar Blue Car Rental, er búinn að fjárfesta í nýjum bíl. Um er að ræða glæsilega Mercedes-Benz AMG G 63-bifreið. Bíllinn er kolsvartur að lit og mattur. Hann er á svörtum felgum og með svörtum rúðum. Auk þess eru allar merkingar utandyra á bílnum svartar.
Bíllinn kom á göturnar 1. febrúar síðastliðinn og hefur vakið mikla athygli. Bílar af þessari tegund eru stundum kallaðir Exit-jeppar þar sem norski útrásarvíkingurinn Adam keyrði um á einum slíkum í þáttunum vinsælu sem sýndir hafa verið á RÚV.
Slíkur bíll kostar um það bil 60.000.000 króna en það fer eftir útbúnaði hvað hann kostar. Bíll Magnúsar var fluttur inn af bílaumboðinu Öskju sem selur Mercedes-Benz-bifreiðar.
Smartland óskar Magnúsi til hamingju með glæsikerruna!