Vikan var fjölbreytt og fjörug á Instagram. Á meðan matargyðjan Eva Laufey Kjaran og leik- og tónlistarkonan Snæfríður Ingvarsdóttir birtu fallegar myndir af óléttukúlunum þá deildu áhrifavaldarnir Patrekur Jaime og Hulda Ósmann trylltum afmælismyndum!
Athafnakonan Elísabet Gunnarsdóttir fór til Parísar á dögunum. Eins og allt fólk sem fylgist með tísku elskar Elísabet borgina.
Samkvæmisdansarinn Hanna Rún Bazev Óladóttir keppti á heimsmeistaramóti í samkvæmisdönsum í Ungverjalandi með eiginmanni sínum, dansaranum Nikita Bazev. Þau eru fengu að sjálfsögðu verðlaun en þau lentu í 6. sæti og fengu bikar.
Tónlistarkonan Þórunn Antonia Magnúsdóttir fór úr jógabuxunum og lopapeysunni á dögunum. Hún birti mynd af sér á Instagram í tilefni þess að hún gerði sig til.
Matargyðjan Eva Laufey Kjaran á von á sínu þriðja barni. Hún mælir með því að eiga börn með góðu millibili þar sem hún getur tíu ára dóttir hennar tekið góðar meðgöngumyndir.
Athafnakonan Camilla Rut hefur bætt enn einni rósinni í hnappagatið, hún er orðinn stafrænn markaðssérfræðingur. Hún fagnaði útskrift um helgina.
Ísdrottningin Ásdís Rán Gunnarsdóttir er á leið í forsetaframboð og er ekki ein af þeim sem skráði sig óvart. Hún greindi frá því á Instagram að hún væri byrjuð að æfa forsetapósurnar og verður líklega með flottustu framboðsmyndirnar.
Snæfríður Ingvarsdóttir, leik- og tónlistarkona, fékk meðal annars tilnefningu sem nýliði ársins á hlustendaverðlaunum sem fóru fram í síðustu viku. Hún býður þó eftir sínum nýliða en hún á von á barni með sambýlismanni sínum, tónlistarmanninum Högna Egilssyni.
Áhrifavaldurinn Sunneva Eir Einarsdóttir er að jafna sig eftir aðgerð á fæti. Hún er komin alveg nóg af því að vera heima eins og hún greindi fylgjendum sínum frá.
Sara Lind Pálsdóttir, oft þekkt sem Sara í Júník, rifjaði upp góðar stundir með barnsföður sínum og birti fjölskyldumyndir af sér.
Jóhanna Helga Jensdóttir var töff í tauinu á Hlustendaverðlaununum.
Ljósmyndarinn og hlaðvarpsstjarnan, Helgi Ómarsson, tók rölt um miðbæ Reykjavíkur. Hann gaf ferðinni þumal upp.
Áhrifavaldurinn Patrekur Jaime fagnaði 24 ára afmæli sínu á dögunum.
Söngkonan Svala Björgvins klæddist stórglæsilegum bleikum síðkjól í myndatöku hjá Tinnu Magg.
Hulda Ósmann hélt upp á þrítugsafmælið með sínum nánustu um helgina með stæl, en veislan var haldin á Tenerife þar sem hún er búsett ásamt fjölskyldu sinni og óhætt að segja að öllu hafi verið tjaldað til!