„Ég trúði því ekki að hún sæi neitt markvert í mér“

Jón Gnarr segist hafa verið eins og gamall lúinn bíll …
Jón Gnarr segist hafa verið eins og gamall lúinn bíll þegar Jóga Gnarr kom inn í líf hans.

Jón Gnarr forsetaframbjóðandi var einn með engu þegar hann og eiginkona hans, Jóga Gnarr, fundu hvort annað fyrir 25 árum. Hann segist hafa verið búinn að glata öllu í lífinu; félagslega, tilfinningalega og svo var hann fjárhagslega gjaldþrota. Hann segir að það hafi verið hans mesta gæfa í lífinu að hafa kynnst Jógu sinni. 

„Ég segi oft í gríni að hún hafi séð mig eins og margir sem sjá gamlan bíl og hugsað: „Þennan mætti nú gera upp.“ Við kynntumst í gegnum sameiginlega vini. Ég hafði líka stundum leitað til hennar í erfiðleikum og fengið lánaða hennar mögnuðu leiðsögn og dómgreind. Jóga mín er nefnilega ofurkona og besti leiðsögumaður sem hægt er að hugsa sér í lífinu enda með einstaka lífsreynslu. Eins og sumir þekkja laxár, hyli og grynningar eða hálendi Íslands og geta vísað fólki örugga og árangursríka leið þá fer hún með fólk í ferðalög um víðáttur andans, hjálpar fólki að hreinsa hugann, græða gömul sár og stilla alla strengi tilfinninganna. Það er engin tilviljun að Björk talar um „emotionallandscapes“ í laginu sínu Jóga, sem hún samdi tilJógu,“ segir Jón Gnarr um eiginkonu sína áFacebook-síðu sinni. 

Jón Gnarr bjó til karakterinn Georg Bjarnfreðarson sem lét ljós …
Jón Gnarr bjó til karakterinn Georg Bjarnfreðarson sem lét ljós sitt skína í Vaktar-seríunum.

„Ég var þá búinn að glata öllu

Jón segist ennþá vera hissa á því að hún hafi viljað hann.

„Ég trúði því ekki að hún sæi neitt markvert í mér. Ég var þá búinn að glata öllu og var eins og rekald í lífinu; félagslega, tilfinningalega og fjárhagslega gjaldþrota. Sjálfsmyndin mín var brotinn frá upphafi en þarna var sjálfstraustið farið og sjálfsvirðingin mín dreggjar einar. En Jóga sá í gegnum þetta allt saman og sá bara kjarnann minn og var reiðubúin að leggja á sig alla þá rosalega vinnu sem fólst í því að gera laskaðan mig upp,“ segir hann. 

Jóga átti gott líf þegar hún og Jón hnutu um hvort annað. Hún bjó ein með syni sínum, Frosta, sem var á unglingsaldri og hafði aldrei verið í sambúð. 

„Hún þurfti ekki á neinu veseni að halda. Með hennar hjálp hef ég fengið að koma upp á hennar plan og standa þar jafnfætis henni. Allt sem ég hef gert hef ég gert með henni. Jóga hefur haft þá köllun að standa með fólki sem er veikt, hrakið og einmana vegna þess að hún hefur verið þar sjálf. Og ég hef séð það sem mína æðstu köllun í þessu lífi að fá þann heiður að fá að standa þannig með henni líka, í blíðu og í stríðu,“ segir Jón.

Jón og Jóga Gnarr fyrir nokkrum árum.
Jón og Jóga Gnarr fyrir nokkrum árum. mbl.is/Eggert

Sigraðist á krabbameini

Jóga greindist með krabbamein fyrir um einu og hálfi ári síðan sem hún hefur læknast af. 

„Hún fór hnarreist og æðrulaus í gegnum erfiða krabbameinsmeðferð en ég þrammaði með henni eins og fótgönguliði. Samband okkar byggir á trausti, vináttu og virðingu. Og öllum orðum sem byrja á sam-. Sam er kjörorðið okkar. Ég er svo stoltur af henni. Sambandið okkar er sá klettur sem við byggjum líf okkar á. Við höfum svarið hvort öðru hollustueið um alla eilífð. Enda erum við búin að gifta okkur þrisvar, fyrst í Fríkirkjunni, svo í Kaþólsku kirkjunni og svo kom ég Jógu á óvart þegar hún varð sextug síðasta sumar og bað hennar og Hilmar Örn Hilmarsson allsherjargoði blessaði okkur. Ég er svo þakklátur og hlakka til að fá að ferðast áfram með ofurkonunni og ástinni minni inní framtíðina og eilífðina. Endalaust,“ segir Jón. 

Jóhanna Jóhannsdóttir (Jóga), Jón Gnarr yngri, Jón Gnarr og Kamilla …
Jóhanna Jóhannsdóttir (Jóga), Jón Gnarr yngri, Jón Gnarr og Kamilla María Gnarr, mbl.is/Golli / Kjartan Þorbjörnsson
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál