Hætti að vera þverhaus sem þóttist vita allt

Frosti Logason er gestur Sölva Tryggvasonar.
Frosti Logason er gestur Sölva Tryggvasonar. mbl.is/Þórður Arnar Þórðarson

Fjölmiðlamaðurinn Frosti Logason segir þakklæti vera lykilatriði í lífi sínu og að honum líði oft eins og yfir honum vaki lukkustjarna. Frosti, sem er nýjasti gesturinn í podcasti Sölva Tryggvasonar, er þriggja barna faðir og segist vera í 200% vinnu. 

„Það er vægast sagt nóg að gera, verandi í nánast 200% vinnu og með þrjú börn. En ef maður hefur virkilega gaman að því sem maður er að gera þá er allt í lagi þó að það sé nánast aldrei dauð stund. Ég hef alla mína tíð verið svo lánsamur að fá að starfa við það sem ég hef gaman að því að gera. Ég hef aldrei þurft að líta á vinnuna mína sem einhverja kvöð og eitthvað sem ég vil ekki gera. Þetta eru ótrúleg forréttindi að fá að sýsla við það sem maður hefur gaman að og hafa tekjur af því. Þannig að þó að það sé brjálað að gera er maður ekki bugaður eða yfirkeyrður. Það gefur manni kraft að gera nákvæmlega það sem maður vill vera að gera. En líf mitt er orðið þannig að dagskráin er ansi þétt nánast alla daga ársins,” segir Frosti, sem segist mjög þakklátur fyrir líf sitt og að hann upplifi sig sem mjög blessaðan mann:

„Mér líður oft eins og að það vaki yfir mér lukkustjarna og að ég fái mikið af góðum spilum í lífinu og ég er mjög þakklátur. Á hverjum degi fer ég á hnén og þakka fyrir allt það góða í mínu lífi. Það er lykilatriði fyrir mig að iðka þakklæti. Annars getur maður mjög auðveldlega fallið í þann gír að fara að finnast allt ósanngjarnt og fara í samanburð við annað fólk. Það er mikill munur á því hvernig líf þitt er eftir því hvert þú setur athyglina. Það hefur verið mín reynsla eftir að ég breytti lífi mínu og eftir að ég fór í alla sjálfsvinnuna í kjölfarið á því að ég hætti að drekka.“

Hjónin Frosti Logason og Helga Gabríela Sigurðardóttir eiga þrjú börn.
Hjónin Frosti Logason og Helga Gabríela Sigurðardóttir eiga þrjú börn. mbl.is/Stella Andrea

Sjálfsskoðun skilaði árangri 

Frosti segist hafa breyst mikið á síðustu árum, ekki síst þegar kemur að getunni til að skipta um skoðun og átta sig á eigin dómhörku. Sjálfsvinna hafi skilað því að hann sjái nú alls kyns hluti í nýju ljósi.

„Þegar svona þverhaus eins og ég var lærir að skipta um skoðun gerast magnaðir hlutir. Það opnast alls konar nýjar dyr og maður sér hluti í allt öðru ljósi en áður. Ég man fyrst þegar ég áttaði mig á því að ég væri komin með allt aðra skoðun á einhverju en ég hafði haft nokkrum árum áður. Fram að því hafði ég alltaf verið svo ofboðslega viss í minni sök. Þegar ég var búinn að ákveða eitthvað var það bara þannig og ekkert gat breytt því,” segir Frosti, sem segir skoðun sína á trú og æðri mætti vera eitt skýrasta dæmið um það hvernig hann hafi breyst. 

„Ég var alltaf rosalegur trúleysingi og var búinn að lesa allt sem staðfesti þessa skoðun mína. Ég vissi bara algjörlega af hverju það væri ekki til neinn guð og ég vissi líka af hverju fíflin sem héldu að það væri til guð trúðu því. Það var ekki hægt að breyta þessari heimsmynd minni. En svo hefur bara rosalega mikið breyst á síðustu árum og ég er ekki trúleysingi lengur. Ég gæti farið í það í löngu máli af hverju ég skipti um skoðun. En aðalatriðið er hvað það opnast margar dyr við það að kunna að skipta um skoðun og hætta að vera þverhaus sem þykist vita allt. Bara það að þessar dyr opnist fer maður að sjá alla veröldina í nýju ljósi.“

Hægt er að sjá brot úr þættinum hér fyrir neðan: 



mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál