Hjónin Hafdís Björk Jónsdóttir tannlæknir og Jón Jónsson tónlistarmaður fagna í dag sjö ára brúðkaupsafmæli eða ullarbrúðkaupi. Parið er búið að vera óaðskiljanlegt síðan á unglingsaldri og eiga saman fjögur börn.
„Gift í 7 ár...,“ skrifar Jón á Instagram og birti mynd af þeim Hafdísi úr hjólaferð í Króatíu á dögunum. Hjónin virka alltaf jafn ástfangin.
Ljósmyndari Smartlands var á staðnum þegar Hafdís og Jón gengu í hjónaband í Dómkirkjunni þann 1. júlí 2017 eins og sjá má í meðfylgjandi grein. Má þar sjá fræga gesti í brúðkaupi þeirra. Einnig má sjá þau aka frá kirkju á sætri bjöllu.
Hafdís og Jón halda áfram að lifa lífinu en nýlega seldu þau húsið sitt á Seltjarnarnesi og keyptu annað hús við Hamarsgötu í sama bæjarfélagi.