Instagram: Sólþyrstir og léttklæddir landsmenn

Landsmenn sleiktu sólina hérlendis og erlendis.
Landsmenn sleiktu sólina hérlendis og erlendis. Samsett mynd

Sumrinu fylgir aukin hreyfing og ferðalög. Áhrifavaldar, íþróttastjörnur og aðrir hafa verið iðnir við að deila myndum frá ferðalögum sínum, bæði hérlendis og erlendis. Rúrik Gíslason, fyrrverandi landsliðsmaður í knattspyrnu, baðar sig um þessar mundir í geislum sólarinnar á Ítalíu á meðan Sunneva Eir, áhrifavaldur og hlaðvarpsstjarna, spókar sig um í Króatíu ásamt góðvinkonum sínum.

Já, lífið er ljúft á Instagram!

Sól og sumar!

Sunneva Eir Einarsdóttir samfélagsmiðlastjarna er erlendis í sumarfríi. Sólin hefur leikið við hana í fríinu. 

Húðflúr!

Tónlistarmaðurinn Emmsjé Gauti sýndi húðflúrið og tilkynnti nýja plötu í leiðinni. 

Selma fékk óvænta veislu!

Selma Björnsdóttir var alsæl í vikunni en hún fékk óvænta afmælisveislu í vikunni. 

View this post on Instagram

A post shared by Selmabjorns (@selmabjorns)

Sumar í Englandi!

Athafnakonan Tanja Ýr Ástþórsdóttir býr í Manchester og þar er komið sumar. 

View this post on Instagram

A post shared by T A N J A Ý R (@tanjayra)

Náði markmiðinu!

Berg­lind Guðmunds­dótt­ir, hjúkr­un­ar­fræðing­ur og eig­andi Sal­ina.is, setti sér markmið og náði því þegar hún hljóp heila 22 kílómetra í Hólmsheiðarhlaupinu. 

View this post on Instagram

A post shared by Berglind (@lifsgledin)

Sumarleg í hvítu!

Ef það er tími til að klæðast hvítu þá er það á sumrin. Tiktok-stjarnan Embla Wigum birti mynd af sér í hvítum kjól á Instagram. Hún sagðist ætla klæðast hvítum kjólum í allt sumar. 

Tveir svalir!

Tónlistarmennirnir Patrik Atlason og Herbert Guðmundsson skelltu sér í myndatöku saman. 

Stelpuferð á ströndina!

Leikkonan Donna Cruz nýtur lífsins þessa dagana með vinkonum sínum í sólarlandaferð og auðvitað kíktu þær á ströndina!

View this post on Instagram

A post shared by Donna Cruz (@donnacruzis)

Brosmildur í bátsferð!

Arnór Sigurðsson, landsliðsmaður í fótbolta, brosti sínu breiðasta ber að ofan í bátsferð í sólinni með sínum nánasta hópi. Mikilvægt að hlaða batteríin fyrir næsta tímabil í boltanum!

Heitt kvöld!

Fyr­ir­sæt­an og áhrifa­vald­ur­inn, Nadía Sif Lín­dal, var sjóðheit á sumarkvöldi en hún var sportleg í þægilegu dressi frá Define The Line Sport, með silkiklút frá Nina og skart frá Noora Jewellery.

Sönggyðjan með tónlistamyndband við þjóðhátíðarlagið í ár!

Söngkonan Jóhanna Guðrún Jónsdóttir var glæsileg í nýju tónlistarmyndbandi sem hún gaf út í vikunni!

Kældi sig niður í sjónum í Króatíu!

Hlaðvarpsstjarnan Birta Líf ólafsdóttir var líka stödd með Sunnevu Einarsdóttur og fleiri vinkonum í Króatíu. Birta naut sín í botn og tók sér sundsprett í sjónum.

View this post on Instagram

A post shared by Birta Líf (@birtalifolafs)

Sumarlegir kúrekastrákar!

Fyrrum meðlimir 12:00 þeir Aron Már Ólafsson leikari, Egill Ploder Ottósson útvarpsmaður og Arnar Þór Ólafsson fjármálaverkfræðingur og sjónvarpsmaður gáfu út nýjan sumarsmellinn 0 upp í 100 sem var sett saman af tónlistarmanninum Jóni Bjarna Þórðarsyni.

Mæðginin nutu veðurblíðunnar!

Birgitta Líf Björnsdóttir kíkti í miðbæinn um helgina og naut veðurblíðunnar. Með í för var kornungur sonur hennar, Birnir Boði.

Koss í Jökulsárlóni!

Dóra Júlía, betur þekkt sem DJ Dóra Júlía smellti einum kossi með kærustu sinni Báru Guðmundsdóttur, söngkonu, við Jökulsárlón um helgina. Óhætt er að segja að ástin blómstrar hjá parinu!

Íslenska miðsumarkonan!

Erna Hrund Hermannsdóttir fagnaði sumarblíðunni ásamt stórglæsilegum hópi kvenna. 

Sjóðheitur við sundlaugabakkann!

Fyrrverandi knattspyrnumaðurinn og IceGuys-stjarnan Rúrik Gíslason kann að lifa lífinu í lúxus. Rúrik nýtur lífsins á Ítalíu um þessar mundir. 

Næsta Lara Croft!

Tónlistarkonan Bríet Ísis Elfar var stórglæsileg á tónleikum í Hörpu á dögunum. Klæðaburður hennar minnti helst á tölvuleikakarakterinn Löru Croft úr Tomb Raider. 

View this post on Instagram

A post shared by BRÍET (@brietelfar)

Glæsileg í tauinu!

Birgitta Haukdal skein skært í brúðkaupi vinahjóna sinna á dögunum. Tónlistarkonan birti einnig fallega mynd af sér ásamt eiginmanni sínum Benedikt Einarssyni. 


 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál