Pétur Jóhann selur 7,6 milljóna hjólhýsi

Pétur Jóhann Sigfússon hefur sett glænýtt hjólhýsi sitt á sölu.
Pétur Jóhann Sigfússon hefur sett glænýtt hjólhýsi sitt á sölu. Samsett mynd

Leikarinn og skemmtikrafturinn Pétur Jóhann Sigfússon setti á dögunum inn færslu á Facebook-hópinn Brask og brall þar sem hann auglýsti glænýtt hjólhýsi til sölu. 

Hjólhýsið er af gerðinni Hobby 620 Cl Alde og er að sögn Péturs Jóhanns tilbúið í útileguna. Hjólhýsið státar meðal annars af gólfhita, sólarsellu og aukarafgeymi svo eitthvað sé nefnt. Verðið sem gefið er upp í færslunni er 7.650.000 krónur. 

Pétur Jóhann er með glænýtt hjólhýsi til sölu.
Pétur Jóhann er með glænýtt hjólhýsi til sölu. Skjáskot/Facebook

Pétur Jóhann er enginn nýliði þegar kemur að hjólhýsum og útilegum, en hann hefur sjálfur verið duglegur að ferðast og var til að mynda staddur í hjólhýsi í Húsafelli ásamt syni sínum þegar útvarpsmenn K100 slógu á þráðinn hjá honum sumarið 2021.

Þá hefur hann einnig leikið í eftirtektarverðum hjólhýsaauglýsingum. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál