Rúrik hrósar Aroni í hástert fyrir kviðvöðvana

Rúrik Gíslason og Aron Can Gultekin eru báðir meðlimir í …
Rúrik Gíslason og Aron Can Gultekin eru báðir meðlimir í strákabandinu IceGuys. Samsett mynd

Tónlistarmaðurinn Aron Can Gultekin er nýkominn heim frá Tékklandi, en hann birti í gærkvöldi skemmtilega myndaröð frá ferðinni á Instagram-reikningi sínum.

Myndaröðin innhélt meðal annars sjóðheita ræktarmynd af Aroni sem er í fantaformi enda duglegur að hreyfa sig og hugsa um heilsuna. Aron hefur sýnt frá æfingum sínum á Instagram, en hann er bæði duglegur að mæta í ræktina en líka að hlaupa. 

Fyrrverandi knattspyrnumaðurinn Rúrik Gíslason, sem er ásamt Aroni meðlimur í strákabandinu IceGuys, var ekki lengi að skrifa ummæli við myndaröðina þar sem hann hrósaði Aroni í hástert, þá sérstaklega fyrir kviðvöðvana. 

„10/10 fyrir caption. Ætla ekki að reyna að rate-a þetta greatest sixpack í sögu sixpack-a!“ skrifaði Rúrik undir myndaröðina – ekki amalegt hrós að fá!

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál