Instagram: Helgi Ómars og Dóra Júlía fögnuðu í miðbænum

Litir og glamúr.
Litir og glamúr. Ljósmynd/Samsett mynd

Það var nóg um að vera í liðinni viku en miðbær Reykjavíkur var litríkari sem aldrei fyrr þegar fólk fagnaði fjölbreytileikanum í Gleðigöngunni. Aðrir nýttu síðustu daga sumarfrísins í hreyfingu eða sleiktu sólina á erlendri grundu. 

Dóra Júlía Agnarsdóttir, Ingileif Friðriksdóttir og Helgi Ómarsson fögnuðu ástinni í Reykjavík. Sigríður Margrét var stödd á tískuvikunni í Kaupmannahöfn og svo styttist í annað barn áhrifavaldsins Fanneyjar Dóru.

Gleðileg mannréttindi

Dóra Júlía Agnarsdóttir plötusnúður og fjölmiðlakona bauð í teiti á laugardaginn til að fagna fjölbreytileikanum. 

Tolla í tískunni

Guðmundur Birkar Pálmason kírópraktor, Gummi kíró, og Lína Birgitta Sigurðardóttir áhrifavaldur sportuðu sig í miðbæ Reykjavíkur. 

Tískudrottning á tískuviku

Sigríður Margrét viðskiptafræðingur og áhrifavaldur lét sig ekki vanta á tískuvikuna í Kaupmannahöfn. 

Listræn!

Ástrós Traustadóttir dansari klæddi sig upp á og fór á listasafn. 

Alsæl í sólinni!

Brynhildur Gunnlaugsdóttir áhrifavaldur er enn stödd í sólinni og unir sér vel. 

Hlaupaveisla!

Hlauparinn Birna María Más­dóttir nældi sér í silfrið í utanvegahlaupakeppninni Súlur Vertical.

Brúðkaupsfjör!

Birgitta Líf Björns­dótt­ir, sam­fé­lags­miðlastjarna og markaðsstjóri World Class, gerði sig fína og fór í brúðkaup. 

Öll ástin!

Hjón­in Ingi­leif Friðriks­dótt­ir og María Rut Krist­ins­dótt­ir voru í ess­inu sínu um helgina þar sem þær fögnuðu ástinni, hamingjunni, fjölbreytileikanum og gleðinni með stæl. 

Afmæli í sólinni!

Þjálfarinn Arnfríður Helgadóttir naut sín í sólinni á 21 árs afmælisdaginn. 

Ástfangin í Skógarböðunum!

Áhrifavaldurinn Lára Clausen gerði vel við sig í Skógarböðunum á Akureyri ásamt kærasta sínum Jens Wessman.

TikTok-stjörnur í brekkunni!

TikTok-stjörnunar Ólafur Jóhann og Sigurlaug Birna fóru í fyrsta sinn á þjóðhátíð í Vestmannaeyjum um verslunarmannahelgina.

Ástin var í loftinu!

Helgi Ómarsson og Pétur Björgvin Sveinsson létu sig ekki vanta í miðbæ Reykjavíkur á laugardag. 

Afmælisfín!

Knattspyrnukonan Karólína Lea Vilhjálmsdóttir fagnaði afmæli sínu með stæl. 

Styttist í barn númer tvö!

Áhrifavaldurinn Fanney Dóra Veigarsdóttir birti fallegar bumbumyndir. 

Allt fyrir ástina!

Tónlistarmaðurinn Páll Óskar Hjálmtýsson fagnaði ástinni og fjölbreytileikanum ásamt eiginmanni sínum Ed­g­ar Ant­onio Lucena Anga­rita í Gleðigöngunni á laugardag. 

View this post on Instagram

A post shared by Páll Óskar (@palloskar)

Bumbulífið!

Tanja Ýr Ástþórsdóttir tók sæta sjálfu með bumbubúa.

View this post on Instagram

A post shared by T A N J A Ý R (@tanjayra)

Sumarkjóll og sól!

Bára Jónsdóttir nýtur lífsins um þessar mundir á Spáni. 

Regnbogagleði!

Felix Bergsson og Baldur Þórhallsson áttu litríkan dag ásamt fjölskyldu sinni. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál