Rakel og Andri giftu sig á lúxushóteli í Bretlandi

Rakel Rúnarsdóttir rekstrarhagfræðingur og Andri Ford sjúkraþjálfari og kírópraktor giftu sig í fallegri athöfn í Bretlandi í gær. Brúðkaupið var haldið í Hampton Manor, fimm stjörnu lúxushóteli rétt fyrir utan Birmingham. 

Athöfnin fór fram úti í garði lúxushótelsins.
Athöfnin fór fram úti í garði lúxushótelsins. Skjáskot/Instagram

Athöfnin fór fram úti í garði hótelsins í góðu veðri. Blómaskreytingarnar voru látlausar og náttúrulegar með hvítum og grænum blönduðum blómum. Rakel klæddist hvítum síðkjól í athöfninni en skipti síðan út fyrir styttri kjól þegar leið á partýið eins og vinsælt er orðið. 

Rakel klæddist síðum hvítum kjól í athöfninni en skipti svo …
Rakel klæddist síðum hvítum kjól í athöfninni en skipti svo í styttri kjól þegar líða tók á veisluna.

Áhrifavaldurinn og fagurkerinn Svana Lovísa Kristjánsdóttir var gestur í brúðkaupinu og var ánægð með hótelið. Hún sýndi frá fallegu hótelherbergi sínu á Instagram.

Fallegt herbergi Svönu Lovísu.
Fallegt herbergi Svönu Lovísu. Skjáskot/Instagram

Hampton Manor er aðeins í um 25 mínútna akstursfjarlægð frá Birmingham. Hótelið er gamalt sveitasetur sem hefur verið gert upp í nútímalegri stíl. 24 herbergi eru á hótelinu en þar hefur verið vinsælt að halda brúðkaup og aðra viðburði.

Hampton Manor er gamalt sveitasetur.
Hampton Manor er gamalt sveitasetur. Ljósmynd/Skjáskot Hampton Manor
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál