Jói Fel bað Kristínar Evu – hún sagði já!

Bakarinn Jóhannes Felixson, Jói Fel, bað kærustu sinnar, Kristínar Evu Sveinsdóttur, á Miami ströndinni í Flórída í Bandaríkjunum. Hún sagði já. Kristín Eva fagnaði 50 ára afmæli sínu 13. ágúst og notaði bakarinn tækifærið og óskaði eftir því að þau myndu giftast. 

Parið fór til Bandaríkjanna í síðustu viku þar sem Kristín Eva keppti í fitness. Parið hefur sameiginlegan líkamsræktaráhuga en í viðtali við Guðrúnu Selmu Sigurjónsdóttur í Heilsublaði Morgunblaðsins í fyrra sagði Jói Fel frá því hvað það væri mikilvægt að hafa góðan æfingafélaga. 

„Ég og unn­usta mín æfum sex sinn­um í viku sam­an, stund­um sjö sinn­um. Ég reyni að fara á hverj­um degi á æf­ingu en er ekki nema einn til einn og hálf­an tíma á dag. Kon­an er reynd­ar miklu flott­ari og betri. Hún er marg­fald­ur Íslands­meist­ari í fit­n­ess, hún er til dæm­is nú­ver­andi Íslands­meist­ari í icef­it­n­ess.

Hún vann all­ar þraut­ir sem voru í boði, vann sam­an­b­urð og tók til dæm­is 90 arm­beygj­ur, geri aðrir bet­ur. Hún vann allt sem hægt var að vinna á þessu móti. Æfing­ar eru ekki áhuga­mál hjá mér, meira svona lífs­stíll. Áhuga­mál mín eru af öðrum toga, ég mála mikið og teikna mikið og spila smá golf á sumr­in.“

Kristín Eva Sveinsdóttir og Jói Fel. Myndin var tekin fyrir …
Kristín Eva Sveinsdóttir og Jói Fel. Myndin var tekin fyrir Heilsublað Morgunblaðsins í fyrra. mbl.is/Arnþór Birkisson

Í viðtalinu var hann spurður að því hvað gæfi lífinu gildi og það stóð ekki á svörunum: 

„Núið er best, ekki horfa of langt fram í tím­ann og njóta dags­ins í dag enda er það alltaf besti dag­ur­inn. Vit­andi að all­ir séu hress­ir í kring­um mig, að sjá elsku bestu börn­in mín dafna vel og að eiga for­eldra á lífi eru for­rétt­indi. Sjá dýr­in mín í kring­um mig og hlakka til að koma heim eft­ir lang­an en góðan vinnu­dag og all­ir glaðir.

Mér finnst gott að fara snemma að sofa með góða bók en ég les mjög mikið. Að knúsa kon­una mína góða nótt og hlakka til að taka morg­un­deg­in­um með bros á vör. Ég get ekki beðið um mikið meira en það,“ sagði Jói Fel. 

Smartland óskar parinu til hamingju með ráðahaginn! 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál