Ungfrú Ísland á sér Hollywood-tvífara

Sóldís Vala er glæsilegur fulltrúi Íslands.
Sóldís Vala er glæsilegur fulltrúi Íslands. Skjáskot/Instagram

Því hefur lengi verið haldið fram að hver og einn einstaklingur eigi sér tvífara einhvers staðar úti í hinum stóra heimi en hvar er ómögulegt að segja til um.

Hin nýkrýnda Ungfrú Ísland á sér svo sannarlega Hollywood-tvífara og mögulega fleiri en einn.

Sóldís Vala Ívarsdóttir, 18 ára gömul Árbæjarmær, þykir einstaklega lík bandarísku leik- og söngkonunni Selenu Gomez og af myndum að dæma þá gætu þær verið systur.

Sóldís Vala og Selena eru mjög líkar.
Sóldís Vala og Selena eru mjög líkar. Samsett mynd

Tvífararnir eiga það sameiginlegt að hafa sigrað í fegurðarsamkeppnum, en Gomez keppti í fegurðarsamkeppni barna sem ung stúlka og vann.

Gomez hefur verið í sviðsljósinu um árabil.
Gomez hefur verið í sviðsljósinu um árabil. Skjáskot/Instagram

Sóldís Vala bar sigur úr býtum í íslensku fegurðarsamkeppninni sem fram fór í Gamla bíói þann 14. ágúst síðastliðinn. Hún verður því full­trúi Íslands í keppn­inni Ung­frú Heim­ur (e. Miss Uni­verse) sem fram fer í Mexí­kó í nóv­em­ber.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál