Hildur Sif og Páll Orri ástfangin í eitt ár

Hildur Sif og Páll Orri fögnuðu eins árs sambandsafmæli sínu …
Hildur Sif og Páll Orri fögnuðu eins árs sambandsafmæli sínu í gær. Skjáskot/Instagram

Ástin virðist blómstra hjá áhrifavaldinum Hildi Sif Hauksdóttur og Páli Orra Pálssyni lögfræðingi. Þau fögnuðu í gær eins árs sambandsafmæli sínu.

Hildur Sif birti fallega mynd í tilefni dagsins sem tekin var þegar parið var í fríi í Suður-Frakklandi í sumar með yfirskriftinni: „Eitt ár.“

Parið opinberaði samband sitt í febrúar síðastliðnum þegar Hildur Sif sendi Páli Orra afmæliskveðju á Instagram. Sex ára aldursmunur er á parinu, en Hildur Sif er fædd árið 1993 á meðan Páll Orri er fæddur árið 1999.

Smartland óskar þeim til hamingju með ástina!

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál